Stjórnin

Ég vil lifa lífinu... upplifa slatta af hamingju...

þriðjudagur, apríl 11

Brunch á föstudaginn langa

Sælar stúlkur nær og fjær

Þeim Stjórnarmeðlimum sem eru á landinu á föstudaginn langa er boðið í brunch heim til mín. Mæting klukkan tólf. Allskonar góðgæti á boðstólnum.. nýbakað og ferskt. Þið þurfið ekkert að koma með neitt með ykkur :P

Kær kveðja, Lauga bakarastúlka

laugardagur, apríl 1

Rjómabollur og guðalaug

Well... ég er komin með nýja síðu.. vildi bara láta ykkur vita af því. Keypti mér hýsingu og lén.. og ætla í framtíðinni að koma með úper dúper nördasíðu með admin kerfi og meiru, en núna er þetta bara gamla síðan endurbætt (engar töflur og útlit og uppsetning skilgreint eingöngu með css).. Búin að uppfæra hlekkinn hér til hægri þannig að þið getið skoðað hana :)

En já.. rjóma(bollu)blíð úti.. og svo rjóma(bollu)partý eftir tæpan mánuð... hlakka mikið til :)