Stjórnin

Ég vil lifa lífinu... upplifa slatta af hamingju...

þriðjudagur, apríl 11

Brunch á föstudaginn langa

Sælar stúlkur nær og fjær

Þeim Stjórnarmeðlimum sem eru á landinu á föstudaginn langa er boðið í brunch heim til mín. Mæting klukkan tólf. Allskonar góðgæti á boðstólnum.. nýbakað og ferskt. Þið þurfið ekkert að koma með neitt með ykkur :P

Kær kveðja, Lauga bakarastúlka

laugardagur, apríl 1

Rjómabollur og guðalaug

Well... ég er komin með nýja síðu.. vildi bara láta ykkur vita af því. Keypti mér hýsingu og lén.. og ætla í framtíðinni að koma með úper dúper nördasíðu með admin kerfi og meiru, en núna er þetta bara gamla síðan endurbætt (engar töflur og útlit og uppsetning skilgreint eingöngu með css).. Búin að uppfæra hlekkinn hér til hægri þannig að þið getið skoðað hana :)

En já.. rjóma(bollu)blíð úti.. og svo rjóma(bollu)partý eftir tæpan mánuð... hlakka mikið til :)

fimmtudagur, mars 23

Halló gellur nær og fjær

Kannski ég setji inn fréttir af mér..

Ég hef allt gott að segja, er bara að vinna og sofa og leika mér þessa dagana.
Ég skráði mig í átakskeppni milli RB og Seðlabankans í byrjun árs eins og sumar ykkar vita.. og í næstu viku er komið að lokum þessarar keppni... nema þegar ég verð mæld (ef ég kemst ekki hjá því) ætla ég að segjast hafa misskilið þetta... haldið að þetta væri átkeppni og það hafi átt að hækka fituprósentuna :) Er semsagt ekki búin að standa mig.. alveg þvert á móti! Ekki gott.

Var líka byrjuð á dansnámskeiði sem okkur Tryggva gengur rosa vel á.. nema við erum ekki búin að mæta síðustu þrjár vikurnar sökum annríkis í vinnunni hjá Tryggva. Mikið að gera í skóbransanum. Já og ef það var ekki sökum annríkis Tryggva þá var það ég að æfa atriði fyrir árshátíðina eða eitthvað.

Árshátíðin okkar fór fram síðustu helgi.. ekkert smá batterý að skipuleggja eitt stykki grand árshátíð fyrir 130 manns.. en svakalega gaman. Við fengum Smaladrengina til að spila í fordrykknum :) Þeir eru ekkert smá góðir :D Svo er Daníel líka að kenna okkur .Net í RB alla þriðjudaga og fimmtudaga eftir hádegi.. þannig að maður fær örlítinn gamlan skólafíling þegar hann mætir uppí RB :P
En já, segja ykkur meira frá árshátíðinni. Sextán konur í RB, meðal annarra ég, vorum með stórt atriði sem tók margar margar vikur að plana og æfa. Skiptum okkur í tvennt og 8 okkar spiluðu á prik og trommur og 8 okkar dönsuðum afródans við. Svo vorum við líka með tvo trommara með okkur. Þetta var mjööög stórt og flott atriði. Vá ég verð að sýna ykkur búninginn einhverntíma.. hann er... horrible!!! en þegar hann var kominn meðal hinna hörmulegu búninganna voru þeir allt í lagi :)
Árshátíðin var allavega svakalega skemmtileg og Millarnir og Palli og Bogomil skemmtu eitthvað fram eftir.. ég man reyndar voða lítið eftir þeim :P

Hmm.. hvað er meira að frétta. Jú, ég er að fara í brúðkaup í sumar, hún Páley sem ég var að leigja með er að fara að gifta sig í júlí :)

Well.. hugsa ég fari að koma mér í háttinn núna.. nenni ekki að bíða lengur eftir workingboy (Tryggva.. já ég sagði að það væri mikið að gera hjá honum þessa dagana)